Aflraunakeppnin Fjallkonan
Aflraunakeppnin Fjallkonan fer fram 13. og 14. júní þar sem margar af sterkustu konum landsins taka á honum stóra sínum. Um er að ræða kraftakeppni kvenna sem fram fer í Stykkishólmi og Snæfellsbæ. Keppnin hefur vakið mikla lukku en hún er nú haldin í þriðja sinn.
Keppt verður í Stykkishólmi laugardaginn 13. júní og hefjast leikar kl. 12:00 við Stykkishólmskirkju. Íbúar og aðrir gestir hvattir til að mæta og fylgjast með þessari mögnuðu keppni.
Seinni keppnisdagur fer fram í Snæfellsbæ þann 14. júní.