Fara í efni

Afmælishátíð skólastarfs í Stykkishólmi

19.02.2026
Fréttir

Opið hús þriðjudaginn 24. febrúar frá 12:00 til 13:30

Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 verður merkum tímamótum í sögu skólahalds í Stykkishólmi fagnað. Á þessu ári eru liðin 130 ár frá því að rekstur barnaskóla hófst í Stykkishólmi, eftir byggingu fyrsta skólahússins árið 1896. Í fyrra voru liðin 90 ár frá því að Barnaskólinn í Stykkishólmi við Skólastíg var tekinn í notkun (1935), bygging sem í dag hýsir Tónlistarskóla Stykkishólms. Þar að auki voru í fyrra 40 ár frá vígslu núverandi skólabyggingar grunnskólans við Borgarbraut.

Af þessum merku tilefnum mun sveitarfélagið bjóða í opið hús í Grunnskólanum í Stykkishólmi, við Borgarbraut, þriðjudaginn 24. febrúar frá 12:00 til 13:30. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að kynna sér nýja innviði og aðstöðu fyrir skóla- og frístundastarf í Stykkishólmi og jafnframt minnst hinnar merkilegu sögu skólahalds í Stykkishólmi.

Íbúar eru hvattir til að kíkja í heimsókn í skólann. Þá eru fyrrum kennarar og starfsmenn sérstaklega hvattir til að líta við.

Dagskrá

12:00 - Allir velkomnir
Formenn nemendaráðs taka á móti gestum og flytja stutt ávarp um skólastarfið í GSS.

Bekkjastofur
Kíkið í heimsókn og takið þátt í fjölbreyttri verkefnavinnu með nemendum, kennurum og stuðningsfulltrúum.

List- og verkgreinastofur
Heimsækið list- og verkgreinarýmin okkar, forvitnist um verkefni nemenda og spjallið við nemendur og kennara.

Stykkið
Afmæliskaka og kaffi

Regnbogaland
Öllum velkomið að skoða nýju rýmin. Starfið í Regnbogalandi hefst kl. 13:30

Bættir innviðir

Til þess að mæta vexti samfélagsins og stöðugri íbúafjölgun undanfarin tíu ár réðist sveitarfélagið á síðasta ári í umfangsmiklar fjárfestingar í innviðum skólans, með það að markmiði að gera stjórnendum kleift að skipuleggja kennslu, stoðþjónustu og frístundastarf með fjölbreyttari, nútímalegri og sveigjanlegri hætti. Jafnframt var lögð áhersla á að nemendur nytu aukins rýmis og betri aðstöðu til náms, sköpunar og samveru, sem stuðlar að aukinni vellíðan, virkni og jákvæðari skólabrag. Með opnu húsi gefst íbúum færi á að kynnast nýjum innviðum, viðbyggingu við skólann og húsnæði Regnbogalands sem tengt er við íþróttamiðstöðina,  og þeirri þróun sem hefur átt sér stað í skólastarfi undanfarin ár.

Getum við bætt efni síðunnar?