Fara í efni

Álagning fasteignagjalda

05.02.2024
Fréttir

Auglýsing um álagningu fasteignagjalda hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi 2024

Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2024 verða ekki sendir út á pappír, heldur munu þeir verða aðgengilegir rafrænt í gegnum www.island.is Ef óskað er eftir því að fá álagningaseðil sendan, vinsamlega hafið samband við Þór Örn bæjarritara í 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Greiðsluseðlar verða heldur ekki sendir út á pappír, nema þess sé sérstaklega óskað. Það má benda íbúum Sveitarfélagsins Stykkishólmi á að allir greiðsluseðlar og reikningar munu birtast á www.island.is frá og með næstu viku. Ef óskað er eftir því að fá senda greiðsluseðla vinsamlega hafið samband í síma 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Gjalddagar fasteignagjalda verða níu á árinu 2024 eftirtaldir: 1. febrúar, 1. mars, 1.apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og 1. október.

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Reglur um afslátt er með eftirfarandi hætti:

Einstaklingar með tekjubil 0-4.549.756 kr. Fá 100% afslátt.

Einstaklingar með tekjubil 4.549.757-4.868.239 kr. Fá 75% afslátt

Einstaklingar með tekjubil 4.868.240-5.209.016 kr. Fá 50% afslátt

Einstaklingar með tekjubil 5.209.017-5.573.647 kr. Fá 25% afslátt

Einstaklingar með tekjubil 5.573.648 kr.og hærra Fá 0% afslátt

 

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 0-7.686.884 kr. Fá 100% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 7.686.885-8.224.966 kr. Fá 75% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 8.224.967-8.800.714 kr. Fá 50% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 8.800.715-9.416.764 kr. Fá 25% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 9.416.765 kr. og hærra Fá 0% afslátt

 

Hámarksafsláttur af fasteignaskatti verður ekki hærri en 115.400 kr.

Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið thor@stykkisholmur.is eða hringja í síma 433-8100

Getum við bætt efni síðunnar?