Almyrkvi verður 12. ágúst
Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvi á sér stað þegar tunglið gengur beint milli sólar og jarðar og skyggir alveg á sólina í örfáar mínútur. Á þeim tíma verður dimmt og hitastig getur jafnvel lækkað lítillega. Fyrir og eftir almyrkva sést deildarmyrkvi, það er þegar tunglið skyggir á hluta sólar.Almyrkvinn sést frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
Búist er við miklum straum ferðamanna til landsins vegna þessa en gistipláss á Vesturlandi er svo gott sem uppbókað fyrir þó nokkru síðan. Almyrkvinn mun vara einna lengst yst á Snæfellsnesi, en Vegagerðin hefur boðað vegalokanir og tímabundnar umferðarstýringar þar sem búist er við miklum umferðarþunga, m.a. á Snæfellsnesi. Tímabundin einstefna verður í vestur frá Búðum í átt að Hellissandi um Útnesveg (574) frá kl. 12:00 þann 12. ágúst. Þá verður Öndverðarnesvegur lokaður en boðið verður uppá rútuferðir út á Öndverðarnes á vegum Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Gestir sem ferðast um Snæfellsnes ættu að gera ráð fyrir lengri ferðatíma, hægri umferð og að þurfa að dvelja áfram á svæðinu eftir að myrkvanum lýkur.Gert er ráð fyrir að umferð um Borgarnes verði hæg, tafir geti myndast við helstu gatnamót, hringtorg og þjónustusvæði.
Deildarmyrkvi hefst um 16:45 og nær almyrkvi hámarki um 17:47, deildarmyrkva lýkur svo um 18:46. Nákvæmar tímasetningar og lengd almyrkva eru mismunandi eftir staðsetningu. En allar upplýsingar um málið má finna á solmyrkvi2026.is
Heilmikið um að vera á Hellissandi
Hellissandur verður þungamiðja hátíðarinnar Iceland Eclipse sem stendur frá 11. - 15. ágúst og er haldin í tilefni almyrkvans. Um er að ræða alþjóðlega tónlistar- og menningarhátíð þar sem fjöldi íslenskra og erlendra tónlistarmanna og fræðimanna koma fram. Gert er ráð fyrir að allt að 5000 gestir dvelji í viku á Hellissandi vegna hátíðarinnar. Geimferðamiðstöð Bandaríkjanna (NASA) verður í þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi með stóra sjónauka og beinar útsendingar á sínum miðlum. Lögreglan á Vesturlandi verður með aukið viðbragð og auka mannskap í sveitarfélaginu auk þess sem Slökkvilið Snæfellsbæjar verður með slökkvibíl og mannafla á Hellissandi vegna hátíðarhaldanna. Á aflagðri flugbraut á flugvellinum á Rifi verða bílastæði fyrir allt að 900 bíla. En á flugbrautinni sem enn er í notkun er gert ráð fyrir þyrlum og einkaflugvélum auk þess sem fallhlífasamtök Íslands verða með stóran hóp fallhlífastökkvara á svæðinu. Rúmlega 40 skemmtiferðaskip ætla að raða sér upp á almyrkvaslóðinni með tugþúsundum farþega. Það er því ljóst að mikill fjöldi ferðamanna verður á Snæfellsnesi til að fylgjast með þessum einstaka náttúruatburði en erfitt er að leggja mat á hve margir ætla að fylgjast með frá Stykkishólmi.
Stúkusæti í Stykkishólmi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi leituðust eftir því að sveitarfélög skilgreindu „safnstaði“ fyrir almyrkvann, þangað sem hægt væri að beina áhugasömum sem vilja safnast saman og fylgjast með almyrkvanum. Íþróttavöllurinn í Stykkishólmi varð fyrir valinu en þar kemst hæglega mikill fjöldi fólks fyrir, bæði í stúku og á vellinum sjálfum. Bílastæði eru við íþróttamiðstöð, grunnskóla og tjaldsvæði og salerni á tjaldsvæði og í íþróttamiðstöð. Einnig er þaðan stutt í verslun og þjónustu.
Stjórnvöld hafa ráðlagt íslendingum að upplifa almyrkvann heima eða í nærumhverfi sínu til að draga úr álagi á samgöngur og innviði. Eins og fram hefur komið má gera ráð fyrir miklum umferðarþunga miðvikudaginn 12. ágúst 2026.