Fara í efni

Átak vegna skráninga fasteigna í sveitarfélaginu

02.09.2026
Fréttir

Skipulagsfulltrúa hefur, í samstarfi við byggingarfulltrúa, verið falið að skoða nánar skráningarmál eigna í sveitarfélaginu og setja á laggir átak vegna óskráða fasteigna.

Á 42. fundi skipulagsnefndar var lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa varðandi skráningarmál fasteigna í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Í minnisblaðinu er greint frá því að byggingarfulltrúa hafi borist ábendingar þess efnis að bæði óskráðar og rangt skráðar eignir sé að finna í sveitarfélaginu.

Samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 segir í 2. mgr. 1. gr. að skrá skuli allar fasteignir í landinu í fasteignaskrá. Einnig í 2. gr. segir að Hverja fasteign skal meta til verðs eftir því sem næst verður komist á hverjum tíma og nánar er kveðið á um í lögum þessum.

Markmið átaksins er fyrst og fremst að bæta skráningu og tryggja að fasteignaskrá gefi rétta mynd af fasteignum og mannvirkjum í sveitarfélaginu. Rétt skráning er mikilvæg, meðal annars vegna fasteignamats og fasteignagjalda.

Unnið verður að yfirferð og samanburði upplýsinga og haft samband við eigendur eftir því sem tilefni er til. Eigendur sem telja að upplýsingar um eignir þeirra séu ekki réttar eru jafnframt hvattir til að kynna sér skráningu eignarinnar og koma leiðréttingum á framfæri eftir því sem við á. Hægt er að hafa samband við skipulagsfulltrúa í síma 433-8100 á opnunartíma Ráðhússins eða með tölvupósti: skipulag@stykkisholmur.is

Á vef HMS er fasteignaskrá þar sem allar eignir eru skráðar og þar kemur fram stærð lóðar/jarðar, stærð mannvirkis o.fl. ásamt fasteignamati eignar. Þar er jafnframt flipi þar sem hægt er að sækja um endurmat bæði á fasteigamati og brunabótamati.

Getum við bætt efni síðunnar?