Fara í efni

Auglýsing um álagningu fasteignagjalda hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi 2023

27.01.2023
Fréttir

Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2023 verða ekki sendir út á pappír, heldur munu þeir verða aðgengilegir rafrænt í gegnum www.island.is Ef óskað er eftir því að fá álagningaseðil sendan, vinsamlega hafið samband við Þór Örn bæjarritara í 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Greiðsluseðlar verða heldur ekki sendir út á pappír, nema þess sé sérstaklega óskað. Það má benda íbúum Stykkishólmsbæjar á íbúagattina á heimasíðunni www.stykkisholmur.is, þar geta íbúar nálgast alla sína reikninga frá bænum, ef óskað er eftir því að fá senda greiðsluseðla vinsamlega hafið samband í síma 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Gjalddagar fasteignagjalda verða níu á árinu 2023 eftirtaldir: 1. febrúar, 1. mars, 1.apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og 1. október.

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Reglur um afslátt er með eftirfarandi hætti:

Einstaklingar með tekjubil 0-4.252.108 kr. Fá 100% afslátt.

Einstaklingar með tekjubil 4.252.109-4.672.176 kr. Fá 75% afslátt

Einstaklingar með tekjubil 4.672.177-5.128.506 kr. Fá 50% afslátt

Einstaklingar með tekjubil 5.128.507-5.561.600 kr. Fá 25% afslátt

Einstaklingar með tekjubil 5.561.601 kr.og hærra Fá 0% afslátt

 

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 0-7.184.004 kr. Fá 100% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 7.184.005-7.610.502 kr. Fá 75% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 7.610.503-8.062.715 kr. Fá 50% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 8.062.716-8.476.353 kr. Fá 25% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil 8.476.354 kr. og hærra Fá 0% afslátt

 

Hámarksafsláttur af fasteignaskatti verður ekki hærri en 107.850 kr.

Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið thor@stykkisholmur.is eða hringja í síma 433-8100

Getum við bætt efni síðunnar?