Fara í efni

Auglýst eftir áhugasömum aðilum til að annast snjómokstur

23.05.2023
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að annast snjómokstur í sveitarfélaginu næstkomandi vetur. Óskað er eftir því að þeir sem hafa áhuga á verkefninu tilkynni áhuga sinn til sveitarfélagsins í netfangið stykkisholmur@stykkisholmur.is fyrir 1. júní nk. Í framhaldinu verða þeir sem sýnt hafa áhuga boðaðir á fund þar sem farið verður nánar yfir umfang vekefnisins og fyrirkomulag.

Nánari upplýsingar um snjómokstur og hálkuvarnir veitir Jón Beck Agnarsson í síma 892-1189.

Einnig má finna nánari upplýsingar um snjómokstur í sveitarfélaginu hér.

Jón Beck, umsjónarmaður snjómoksturs og hálkuvarna
Getum við bætt efni síðunnar?