Fara í efni

Bæjarstjórn vill að dagdvöl hefjist á ný í Stykkishólmi

26.11.2026
Fréttir

Á 54. fundi sínum 26. nóvember 2026 skoraði bæjarstjórn Stykkishólms á forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra, með stuðningi þingmanna Norðvesturkjördæmis, að tryggja Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) þegar í stað heimild og fjármagn til að hefja dagþjálfun á hjúkrunarheimilinu Systraskjóli. Bæjarstjórn óskar eftir að lágmarki þremur rýmum til að byrja með, en að þeim verði síðan fjölgað í samræmi við metna þörf.

Bæjarstjórn telur brýnt að eldra fólk í Stykkishólmi og Helgafellssveit eigi á ný kost á dagþjálfun í heimabyggð.

„Fyrir fólk sem þarf stuðning í daglegu lífi skiptir máli að geta sótt reglulega þjálfun og átt félagsskap yfir daginn. Slík þjónusta getur gert fólki kleift að búa lengur heima og veitt aðstandendum nauðsynlega hvíld,“ segir í bókun bæjarstjórnar. Þar er sérstaklega bent á mikilvægi dagþjálfunar fyrir fólk sem vegna aðstæðna sinna þarf á slíkum stuðningi að halda og fyrir fjölskyldur þess.

Almenn dagdvalarrými voru áður rekin við Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. Þegar HVE tók við rekstri hjúkrunarheimilisins 1. júní 2022 féll þjónustan niður. Sveitarfélagið hafði óskað eftir því að dagdvölin fylgdi hjúkrunarrýmunum en heilbrigðisráðuneytið hafnaði þeirri beiðni.

Aðstaða fyrir dagdvöl var eitt af áherslumálum við sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. Sveitarfélagið fylgdi málinu eftir á fundi með heilbrigðisráðherra haustið 2022, árið 2023 fór bæjarráð formlega fram á að HVE tæki upp dagdvöl á Systraskjóli og frá þeim tíma hefur sveitarfélagið lagt þunga áherslu á mikilvægi þessarar þjónustu.  

Í ársbyrjun 2026 voru 230 íbúar Stykkishólms 67 ára og eldri eða 17,7% íbúa sveitarfélagsins. Í Stykkishólmi, Grundarfjarðarbæ og Snæfellsbæ voru á sama tíma samtals 144 íbúar 80 ára og eldri og af þeim bjuggu 67 í Stykkishólmi eða um 47%.

Í stefnumörkun sveitarfélagsins um málefni fólks 60 ára og eldra frá 2022 var lagt til að tryggð yrðu að minnsta kosti fimm dagdvalarrými í Stykkishólmi. Þá var miðað við eitt rými á hverja tíu íbúa 80 ára og eldri. Sé því viðmiði beitt á íbúatölur í ársbyrjun 2026 má áætla að þörf sé á um sjö dagdvalarrýmum í Stykkishólmi og samtals 14–15 rýmum á Snæfellsnesi öllu.

Sveitarfélögin á Vesturlandi og HVE hafa þegar komið á fót sameiginlegum móttöku- og matsteymum, meðal annars á Snæfellsnesi. Þegar teymið metur að íbúi þurfi á dagþjálfun að halda skiptir máli að hann geti sótt hana í heimabyggð. Bæjarstjórn telur Systraskjól henta vel fyrir dagþjálfun eins og sakir standa. Þar mætti nýta fagþekkingu starfsfólks HVE og tengja dagþjálfunina við heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu.

Bæjarstjórn Stykkishólms styður jafnframt eindregið þá sameiginlegu kröfu og það markmið allra sveitarfélaga á Vesturlandi um að fjölga þurfi dagþjálfunarrýmum um allan landshlutann svo eldra fólk geti sótt þjónustuna í heimabyggð. Þetta markmið er í samræmi við áherslur verkefnisins Gott að eldast og bæjarstjórn hvetur ráðherrana til að styðja sveitarfélögin við að fjölga dagþjálfunarrýmum um allt Vesturland. Áskorun bæjarstjórnar um að hefja dagþjálfun á Systraskjóli er liður í þeirri sameiginlegu vegferð.

Getum við bætt efni síðunnar?