Fara í efni

Baldur kominn heim

23.07.2026
Fréttir

Breiðafjarðarferjan Baldur sneri heim í dag, fimmtudaginn 23. júlí, eftir að hafa sinnt siglingum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja frá því í byrjun júní vegna bilunar í Herjólfi. Frá og með morgundeginum, 24. júlí, hefjast svo reglubundnar ferjusiglingar milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar á ný.

Vegagerðin tilkynnti um ákvörðun innviðaráðherra um að færa Baldur til Vestmannaeyja  2. júní eftir að önnur vél Herjólfs bilaði. Baldur hóf siglingar þar 8. júní, í þriðja sinn á skömmum tíma, til að tryggja samgöngur við Eyjar á meðan viðgerð stóð yfir. Á sama tíma tók farþegabáturinn Særún við siglingum til Flateyjar en engar siglingar voru yfir á Brjánslæk.

Fljótlega kom í ljós að viðgerð Herjólfs tæki lengri tíma en upphaflega hafði verið áætlað og því var dvöl Baldurs í Vestmannaeyjum framlengd. Sú ákvörðun vakti hörð viðbrögð víða við Breiðafjörð þar sem sveitarfélög, íbúar og atvinnulíf bentu á að brotthvarf ferjunnar hefði veruleg áhrif á samgöngur, ferðaþjónustu, atvinnustarfsemi og þjónustu við Flatey yfir annasömustu ferðavikur sumarsins.

Í dag birtu fjölmiðlar pistil innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, þar sem hann fjallaði um ákvörðunina um að færa ferjuna tímabundið til Vestmannaeyja. Þar rakti ráðherra þær forsendur sem lágu að baki ákvörðuninni og ítrekaði að um öryggisráðstöfun hafi verið að ræða.

Ráðherra sagði jafnframt að verkefnið fram undan væri að koma í veg fyrir að sambærileg staða kæmi upp aftur. Fyrsta skrefið hefði þegar verið tekið með pöntun á tveimur nýjum rafmótorum í Herjólf sem ætlaðir eru til vara ef sambærileg bilun kæmi upp síðar. Að lokum þakkaði ráðherra íbúum og fyrirtækjum við Breiðafjörð fyrir þolinmæðina.

Fjölskyldur áhafnarinnar tóku fagnandi á móti sínu fólki.
Getum við bætt efni síðunnar?