Bekkjaganga í Stykkishólmi
Tilgangur göngunnar er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu. Þá er þetta jafnframt liður í því að stuðla að líkamlegri og félagslegri virkni sem eru mikilvægir þættir almennrar heilsu.
Í Stykkishólmi verður gengið frá fjólubláabekknum við Ráðhúsið, að bekknum við Samkomuhúsið og áfram að bekknum við Sýsluskrifstofuna. Þær Hildur Lára Ævardsóttir og Guðrún Magnea Magnúsdóttir leiða gönguna sem fer fram laugardaginn 6. júní kl. 13:00
Bekkurinn við Ráðhúsið í Stykkishólmi var málaður fjólublár og merktur Munum leiðina vorið 2023. Verkefnið var unnið í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina. Fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma. Sambærilegir bekkir hafa verið settir niður víða um land í þeim tilgangi að vekja athygli á og auka umræðu og fræðslu um heilabilun í stað þess að fela umræðuna. Á bekkjunum er QR kóði sem hægt er að skanna og styrkja um leið samtökin.