Fara í efni

Danskir dagar 2026

10.08.2026
Fréttir Lífið í bænum

Danskir dagar verða haldnir í Stykkishólmi dagana 12.–16. ágúst 2026. Hátíðin er ein elsta bæjarhátíð landsins og hefur verið haldin frá árinu 1994. Eftir afar vel heppnaða hátíð árið 2024 er á ný stefnt að fjölbreyttri og líflegri bæjarhátíð þar sem íbúar og gestir koma saman og njóta þess besta sem Stykkishólmur hefur upp á að bjóða.

Danskir dagar eru órjúfanlegur hluti af menningarlífi Stykkishólms og hafa í gegnum árin skapað vettvang fyrir fjölbreytta afþreyingu, tónlist, listir, íþróttir og fjölskylduskemmtun. Hátíðin einkennist af góðri stemningu, samveru og öflugu samstarfi íbúa, fyrirtækja, félagasamtaka og sjálfboðaliða sem leggja sitt af mörkum til að gera helgina eftirminnilega.

Dagskrá hátíðarinnar má sjá hér að neðan. Hægt er að smella á myndina til að stækka hana.

Onsdag den 12. August
12:00 Veitingastaðir opnir frá hádegi
17:15 Almyrkvi á íþróttavellinum
Upplifum almyrkvann (17:45) saman á íþróttavellinum
12:00 - 17:00 Holy cow í Freyjulundi
Pop-up verslun dagana 8.-12. ágúst

Torsdag den 13. August
17:00 Snobrød með Villa í Nýrækt
22:30 DJ á Skipper

Fredag den 14. August
14:30 Jón Dagur á Skipper
Jón Dagur spilar á saxafóninn, glædestund á barnum.
16:15 Spinning í speglasalnum í Íþróttahúsinu
Heiðrún Edda kemur ykkur í gírinn fyrir helgina. Mætum í rauðu og hvítu. Skráning í síma 782-1908
16:30 Leikhópurinn Lotta í Hólmgarði
16:15 Setning hátíðar í Hólmgarði
Sveitarfélagið Stykkishólmur býður á sýninguna.
17:00 Hárbandið fyrir utan Hárstofuna
Í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá fyrstu opnun býður Hárstofan upp á tónlistaratriði fyrir utan stofuna þar sem “Hárbandið” mun stíga á stokk og skemmta gestum og gangandi. Hárbandið skipa tryggustu viðskiptavinir Hárstofunnar þeir Jón Sindri Emilsson, Bæring Nói Dagsson og Bæring Breiðfjörð Magnússon.
18:00 Gadefest um allan bæ
Bæjarbúar eru hvattir til að halda í hefðina og hafa hverfagrill í sínu nærumhverfi.
Siggi Orri flakkar milli grilla með gítarinn og kyndir upp í stemmingunni.
21:00 KK á Narfeyrarstofu
KK fagnar 70 árum og flakkar um landið í tilefni þess. Þetta verður kvöld fullt af söng, gítar og góðum sögum. Miðasala á Tix.is
23:00 Trúbador á Narfeyrarstofu
Siggi Orri heldur uppi stuðinu fram eftir kvöldi

Lørdag den 15. August
10:00 Børneløb frá Ráðhúsinu
Hlaup fyrir káta krakka hverjum flesta til að mæta í búningum. Að loknu hlaupi verður boðið upp á hressingu frá MS.
12:00 Ølløb frá Sjávarpakkhúsinu
Snjólfur Björns og félagar sjá um bjórhlaupið í ár sem er í boði Sjávarapakkhússins og Ölgerðarinnar.
12:00 Netverslanir í tjaldinu
Óli prik, Calma, Memo og Sælar
13:00 Snæfell - Reynir Hellissandur
Snæfell og Reynir Hellissandur mætast í stemmingsleik á vellinum.
Tivolí á Bankatúninu yfir daginn
Kastalar mæta aftur með tívolíið sitt. Eins og síðast hafa þau fengið hressa krakka úr Hólminum til að aðstoða sig og launa þeim með styrk ferðasjóð fyrir útskriftarferð.
13:00-15:00 Stiklur Sýningaropnun í Norska húsinu
Elva Hreiðarsdóttir opnar myndlistarsýningu
14:00-16:00 Loppemarked á Bankatúninu
Hólmarar selja allskonar gull úr geymslunni. Skráning á danskirdagar@stykkisholmur.is
14:00 Sandra Thomsen syngur í Norska húsinu
14:30 Hammer time á torginu hjá Norska húsinu
Ertu handlagnasti Hólmarinn? Keppni að dönskum sið. Veglegur vinningur.
15:00 Musik á sviðinu
KK
Daði Freyr
Dynjandi
Siggi Orri
20:00 Festival stemning á sviðinu
Lalli töframaður kynnir
VÆB
Bæring2
Brekkusöngur með Lalla töframanni
Draugabanarnir

Søndag den 16. August
10:00 Töfranámskeið í Tónó
Langar þig að læra töfrabrögð?
Allir velkomnir.
12:00 Töfrasýning í Tónó
Lalli töframaður sýnir töfrabrögð.

Danski júróvisjónfarinn Jørgen Olsen á Dönskum dögum 2024
Getum við bætt efni síðunnar?