Fara í efni

Dripplmaraþon yngri flokka Snæfells

01.06.2023
Fréttir

Iðkendur yngri flokka Snæfells í körfubolta mun drippla körfuboltum um allar götur bæjarins í fjáröflunarskyni á morgun, föstudag.

Hópurinn leggur af stað frá körfuboltavellinum við skólann kl. 11:00 og taka fyrsta spölinn öll saman áður en hópunum verður skipt upp.

Á meðan dripplinu stendur verður Borgarbrautinni og hluta af Aðalgötunni lokað þegar allur hópurinn hleypur saman. Eftir að hópnum verður skipt upp munu þau hlaupa á gangstéttunum og því ekki þörf á að loka götum á þeim leiðum. Dripplið er í fjálröflunarskyni en nánari upplýsingar má finna á facebooksíðu yngri flokka Snæfells.

Getum við bætt efni síðunnar?