Eyjalíf eftir Reyni Vilhjálmsson opnar í Norska húsinu
Myndlistarsýningin Eyjalíf eftir Reyni Vilhjálmsson opnar í Norska húsinu - Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla föstudaginn 20. mars kl. 14:30. Sýningin er haldin í tengslum við Júlíönuhátíð í Stykkishólmi.
Á sýningunni verða vatnslitaverk eftir Reyni Vilhjálmsson landslagsarkitekt og vatnslitamálara. Reynir lést 7. júlí 2024 á nítugasta aldursári. Verkin á sýningunni eru öll frá Breiðafjarðareyjum. Reynir dvaldi oft í Galtarey á sumrin síðustu 20 ár ævinnar, þar naut hann sín vel og kallaði hann Galtarey paradísareyju.
Verkin á sýningunni eru að mestu upplifun Reynis á hinni undurfögru nátturu Breiðafjarðar þar sem sjórinn flæðir í margbreytileika sínum og straumarnir eru á ferð út og inn fjörðinn og gera það að verkum að landsýnin er síbreytileg.
Reynir fór að leggja stund á vatnslitun þegar hann nálgaðist sjötugsaldurinn og hafði afar góða leiðbeinendur en Reynir var einnig fær teiknari og náði fljótt góðum tökum á vatnslitnum.
Reynir lærði sitt fag landslagsarkitektur í Kaupmannahöfn við Konunglegu akademíuna og starfaði mestan hluta námstímans við skipulagsvinnu og teikningar jafnframt náminu. Eftir heimkomuna stofnaði hann sína eigin teiknistofu sem í dag heitir Landslag.
Öll hjartanlega velkomin, boðið verður upp á léttar veitingar.
Sýningin stendur til 15. apríl. Sýna minna