Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir starfsmanni
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir starfsmanni við félagslega heimaþjónustu (þrif, innlit og leiðsögn) í 50 % stöðu.
Um er að ræða þjónustu við heimili í Stykkishólmi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
- Framtíðarstarf
- Starfið fer fram á dagvinnutíma
- Laun skv. kjarasamningi sveitarfélaganna og Kjalar.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Brynja Mjöll og Ragnheiður Dröfn í síma: 430 – 7800
Eða í gegnum tölvupóst ragnheidur@fssf.is - brynja@fssf.is