Fara í efni

Framkvæmdir við Stykkishólmsveg hafnar

30.04.2026
Fréttir

Framkvæmdir við Stykkishólmsveg eru hafnar. Búið er að fræsa slitlag ofan af veginum frá afleggjara á Búðanesveg og uppúr bænum en nú í sumar verður vegurinn endurbættur og breikkaður fram yfir Þingvallaafleggjara. 

Framkvæmdirnar ná yfir um 3,4 kílómetra kaflaog fela í sér breikkun og styrkingu vegar, nýlögn ræsa og nýlögn á bundnu slitlagi. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði 8 metra breiður, með tveimur 3,5 m breiðum akbrautum og 0,5 m breiðum öxlum.

Fyrirhugað er svo útboð Vegagerðarinnar á endurbótum á Snæfellsnesvegi nr. 54, Stykkishólmsvegur - Svelgsá. En við sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar árið 2022 var einmitt mikil árhersla lögð á endurbætur á þeirri leið. Gert er ráð fyrir að verkið fari í útboð á næstu dögum.

Hér að neðan má sjá mynd af framkvæmdasvæðinu. Hægt er að smella á myndina til að stækka hana.

Stykkishólmsvegur 29. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?