Framkvæmdir við Sundlaug Stykkishólms
Vegna framkvæmda verður útisvæðið við Sundlaug Stykkishólms lokað dagana 5. - 7.maí næstkomandi, innilaugin verður opin. Eins og kunnugt er stendur til að endurnýja heitu pottana og þarf að loka umrædda daga vegna lagnavinnu. Frá og með 8. maí verður sundlaug, vaðlaug og innilaug opin en pottasvæði lokað vegna framkvæmda. Opnað verður fyrir pottana þegar búið er að fjarlægja þá gömlu og koma nýjum og stærri pottum fyrir. Gert er ráð fyrir að verkið verði klárað undir lok maímánaðar.
Í sumar er einnig gert ráð fyrir saunaklefa og infrarauðum klefa. Sú aðstaða kemur í tilbúnni einingu sem verður komið fyrir á sundlaugarbakkan þegar hún kemur. Ekki þarf að loka sundlauginni í tengslum við þá framkvæmd.