Fara í efni

Framkvæmdum við vatnsrennibraut sundlaugar lokið

23.06.2026
Fréttir

Framkvæmdum við endurbætur á vatnsrennibraut Sundlaugar Stykkishólms lauk í dag en þær hófust 22. júní. Markmið framkvæmdanna var að auka bæði öryggi og upplifun gesta af brautinni.

Öryggi og upplifun í fyrirrúmi 

Helsta breytingin felst í því að byggt hefur verið yfir efri hluta brautarinnar. Með þeirri breytingu verður ferðin jafnari og skjólbetri auk þess sem hún eykur öryggi notenda. Jafnframt hefur verið komið fyrir svokölluðum dagsbirtuhringjum sem hleypa birtu inn í brautina og skapa skemmtilega og litríkari upplifun á ferðinni niður.

Myndir hér fyrir neðan sýna bæði nýja yfirbyggingu brautarinnar og dagsbirtuhringina sem nú setja sérstakan svip á rennslisleiðina.

Vatnsrennibrautin var framleidd af Van Egdom í Hollandi og var verkið unnið í samstarfi við Á. Óskarsson ehf., sem er söluaðili búnaðarins hér á landi.

Sveitarfélagið bindur vonir við að endurbæturnar geri brautina enn skemmtilegri fyrir gesti sundlaugarinnar og hvetur íbúa og gesti til að prófa hana í sumar.

Mikilvægt að fylgja öryggisreglum

Við minnum notendur jafnframt á að kynna sér og fylgja þeim öryggisreglum sem gilda um notkun brautarinnar. Reglurnar eru settar fram til að tryggja öryggi allra gesta og stuðla að ánægjulegri upplifun.

Meðfylgjandi eru öryggisreglur brautarinnar.

Getum við bætt efni síðunnar?