Fara í efni

Framtíðarmöguleikar í uppbyggingu íþróttamannvirkja í Stykkishólmi – Íbúafundur 16. mars 2026

13.03.2026
Fréttir Skipulagsmál

Bæjarstjórn Stykkishólms skipaði, á 24. fundi sínum, starfshóp um mótun stefnu sveitarfélagsins í íþróttamálum. Hlutverk hópsins m.a. að móta framtíðarsýn um fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf fyrir íbúa á öllum aldri, bæði innan- og utandyra. Þá var starfshópnum falið að leggja fram tillögur að uppbyggingu íþróttatengdra mannvirkja í sveitarfélaginu, þar sem horft verður til staðsetningar, hlutverks mannvirkja, forgangsröðunar verkefna, tímasetninga og kostnaðarmats.

Stuttur umræðu- og kynningarfundur um fyrirliggjandi hugmyndir í tengslum við vinnu starfshópsins verður haldinn fyrir íbúa sveitarfélagsins mánudaginn 16. mars nk. kl. 17:00-17:30. Fundurinn fer fram á Höfðaborg.

Með fréttinni fylgir mynd sem sýnir þær hugmyndir sem fram hafa komið í vinnu starfshópsins um mögulega byggingarreiti fyrir framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Stykkishólmi. Á myndinni eru svæðin merkt með lituðum reitum sem gefa til kynna möguleg byggingarsvæði. Mikilvægt er að taka fram að reitirnir sýna ekki fyrirhugaðar byggingar heldur aðeins möguleika á staðsetningu mannvirkja til framtíðar.

Með þessari kynningu vill starfshópurinn vekja athygli íbúa á þeim möguleikum sem eru til skoðunar og jafnframt kalla eftir sjónarmiðum frá samfélaginu. Íbúar, félagasamtök og aðrir sem hafa áhuga á þróun íþróttaaðstöðu í Stykkishólmi eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðunum og senda í kjölfarið inn frekari ábendingar, hugmyndir eða athugasemdir.

Eru aðrir möguleikar til staðar? Hvernig ætti að forgangsraða byggingum/viðbyggingum? Hvað viljum við sjá til framtíðar?

Athugasemdir og ábendingar má senda á netfangið magnus@stykkisholmur.is

Framlag íbúa er mikilvægt í þessari vinnu þar sem markmiðið er að móta metnaðarfulla og raunhæfa framtíðarsýn fyrir íþróttastarf í Stykkishólmi sem nýtist samfélaginu til lengri tíma.

Nánar um mögulega byggingarreiti

Hægt er að smella á myndina til að stækka hana.

Rauði reiturinn

Með rauðareitnum á myndinni er horft til þess byggja framan á íþróttahúsið, tvær hæðir. Þannig má bæta við anddyri hússins, aðstöðu Snæfells, geymslu og skrifstofur.

Ljósblái reiturinn

Hugmyndir hafa komið fram um að byggja yfirbyggðan knattspyrnuvöll í Stykkishólmi sem myndi bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar allt árið um kring. Markmiðið væri að skapa skjól fyrir veðri, sérstaklega vindum, rigningu og snjó, sem oft takmarka æfingar yfir vetrarmánuðina. Húsið gæti verið einföld og hagkvæm yfirbygging með gervigrasi, svipuð þeim sem þekkjast víða á Íslandi, þar sem meginhlutverk þess væri að verja völlinn frekar en að vera fullupphituð íþróttahöll. Slík aðstaða myndi nýtast bæði ungum sem öldnum og styrkja íþróttalíf innan sveitarfélagsins.

Guli reiturinn

Með gula byggingarreitnum er horft til þess að byggja ofan á núverandi byggingu þar sem líkamsræktarstöðin er nú staðsett og anddyri íþróttamiðstöðvar. Þannig mætti færa ræktina á efri hæð með útsýni yfir sundlaug og knattspyrnuvöll. Þar sem líkamsræktin er núna gæfist þá gott pláss fyrir fjölnota klefa, geymslu og/eða skrifstofur.

Bleiki reiturinn

Bleiki reiturinn sýnir mögulegan byggingarreit sem gæti bætt við aðstöðu sundlaugar með einhverju móti. Á þessu svæði hefur t.d. komið til tals að reisa útiklefa.

Blái reiturinn

Blái reiturinn á teikningunni nær m.a. yfir það svæði sem Regnbogaland stendur nú á. Þarna er möguleiki á að bæta við íþróttasalinn og/eða stækka ræktina inn í það húsnæði ásamt tómstunda- og æskulýðsstarfi.

Appelsínuguli reiturinn

Á skólalóðinni er pláss fyrir stóran byggingarreit sem getur bæði nýst skóla, félags- og íþróttastarfi, í samræmi við hugmyndir um að færa félagsstarf á umrætt svæði. Með því skapast betri nýting á húsnæði og aðstöðu, þar sem sama rými getur þjónað ólíkum hópum yfir daginn. Nálægðin gerir börnum og ungmennum auðveldara að taka þátt í íþróttum og félagsstarfi strax eftir skóla, sem getur aukið þátttöku og styrkt félagsleg tengsl. Einnig getur það aukið samstarf milli skóla, íþróttafélaga og annarra aðila, sem getur stuðlað að fjölbreyttara og öflugra starfi.

Framtíðarhugmyndir fyrir íþróttasvæði.
Getum við bætt efni síðunnar?