Fara í efni

Fundur um málefni kirkjugarða á Snæfellsnesi

06.06.2023
Fréttir Stjórnsýsla

Boðað er fundar 7. júní 2023 kl. 17:00 í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi um ýmis málefni er varða skipulag og umhirðu kirkjugarða og samvinnu sóknarnefnda/kirkjugarðsstjórna og sveitarfélaga. Vænst er fulltrúa allra kirkjugarða á Snæfellsnesi, fulltrúa sveitarfélaga og presta í prófastsdæminu.

Gestir fundarins eru Guðmundur Rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarðaráðs og Smári Sigurðsson formaður Kirkjugarðasambandsins. Fundarstjóri er Kristín Þorleifsdóttir, sviðstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.

Almennt um kirkjugarða

Kirkjugarðar eru sjálfseignastofnanir og lúta stjórn fulltrúa trú- eða lífsskoðunarfélaga með yfirumsjón Kirkjugarðaráðs. Um kirkjugarða gilda lög um „kirkjugarða gre,run og líkbrennslu“ þar sem m.a. koma fram réAur og skyldur sveitarfélaga við kirkjugarða.

Hvert er hlutverk Kirkjugarðasjóðs

Farið yfir hlutverk sjóðsins og hvernig er hægt að sækja um styrk í hann og hvaða skilyrði umsókn verði að uppfylla. Sýnd dæmi um framkvæmdir við kirkjugarða á svæðinu sem sjóðurinn hefur styrkt.

Tekjur og gjöld kirkjugarða

Á fundinum verður m.a. reynt að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hvernig er rekstur kirkjugarða Dármagnaður og fyrir hvaða er verið að greiða?
  • Ábyrgð og hlutverk kirkjugarðsstjórna?
  • Rafræn skil ársreikninga og sameining á rekstri kirkjugarða?
  • Hver á að standa straum af kostnaði við rekstur eða framkvæmdir?

Umhirða og grafartaka

Ýmsum spurningum verður varpað fram og svarað varðandi umhirðu og graftöku, t.d.:

  • Á hvers ábyrgð og forræði er grafartaka í kirkjugörðum? Hver á að slá og hirða garðinn og hver á að slá - eða moka snjó?
  • Hvernig og hvenær á að „ganga frá nýrri gröf“ ?
  • Hver á að sjá um legsteininn, blómin eða „fallin leiði“ ?

Öll áhugasöm um málefni kirkjugarða eru hjartanlega velkomin


Að fundinum standa: Umhverfis- og skipulagssvið Sveitarfélagssins Stykkishólms, Grundarðarðarbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps, Prófasturinn á Snæfellsnesi, Kirkjugarðaráð og Kirkjugarðasambandið og Svæðisgarðurinn Snæfellsnes. 

 

Getum við bætt efni síðunnar?