Fara í efni

Fundur um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi

20.10.2026
Fréttir

Fimmtudaginn 22. október standa Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða að fundi um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi kl. 17:00-19:00 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?

Fyrri hluti fundarins verður helgaður erindum frá Samtökum ferðaþjónustunnar og markaðsstofunum sem hverfast um ferðaþjónustu í viðkomandi kjördæmi. Þá mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn kjördæmanna um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.

Fundurinn verður bæði staðfundur og í beinni útsendingu á vef SAF – saf.is. Þau sem hafa hug á að mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig, ekki þarf að gera slíkt ef áhugasamir ætla að horfa á streymi.

Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á stöðu ferðaþjónustunnar.

Fundurinn fer fram í Borgarnesi og á vef SAF
Getum við bætt efni síðunnar?