Garðsláttur fyrir eldra fólk og öryrkja 2026
Sem fyrr mun Sveitarfélagið Stykkishólmur bjóða eldra fólki og öryrkjum, með lögheimili í sveitarfélaginu, upp á slátt í heimagörðum.
Þessi þjónusta er eingöngu í boði fyrir eldra fólk og öryrkja sem ekki geta sinnt garðslætti né fengið ættingja til þess. Þjónustan er ekki veitt þar sem heimilismenn, 18 ára og eldri, geta annast slátt.
Fyrirkomulag slátturs
Síðastliðið sumar var lagt upp með nýtt fyrirkomulag slátturs sem reyndist vel og verður því sama fyrirkomulag í ár.
Fyrirkomulagið er þannig að umsækjendur hafa samband við Ráðhúsið í síma 433-8100 og óska eftir slætti fyrir sumarið. Aðeins þarf að óska eftir slætti einu sinni, í byrjun sumars, og munu þá starfsmenn Þjónustumiðstöðvar annast slátt yfir sumarið. Slegið verður a.m.k. þrisvar sinnum yfir sumar en oftar ef spretta ef mikil og tilefni til. Greitt er fyrir þrjá slætti í einni greiðslu sem gildir fyrir allan sláttur sumarsins, þ.e. aðeins er sendur einn reikningur fyrir slætti.