Fara í efni

Gjaldtaka á hafnarsvæði hefst á ný 15. júní

10.06.2026
Fréttir

Gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi hefst á ný mánudaginn 15. júní nk. Tilgangur gjaldtökunnar er sem fyrr að bæta nýtingu bílastæða, stýra umferð og tryggja tekjur til að viðhalda og bæta aðstöðu á svæðinu.

Í kjölfar samráðs við ferðaþjónustuaðila á svæðinu hefur sú breyting orðið á fyrirkomulagi gjaldtöku að gjaldskylda er aðeins á stóra bílaplaninu við minnismerkið á heimleið, bílastæðum undir Súgandisey og á Stykkisbryggju, þar sem rútustæði eru. Ekki verður gjaldskylda á bílastæðum fyrir framan hafnarvogina. Þá hefur sveitarfélagið leigt ferðaþjónustuaðilum á hafnarsvæðinu bílaplanið þar sem söluvagnarnir standa en þar munu þeir ferðaþjónustuaðilar bjóða viðskiptavinum sínum frí bílastæði.

Greinargóðar merkingar vegna gjaldtökunnar verða settar upp á hafnarsvæðinu að morgni dags 15. júní. Líkt og áður hafa þeir sem eru með báta í höfninni heimild til að leggja án endurgjalds. Þeim aðilum er bent á að vera í sambandi við hafnarvörð varðandi skráningu á bílnúmerum.

Eftirlit með greiðslu fer fram á vegum sveitarfélagsins, þar sem starfsmenn skanna bílnúmer og fletta upp hvort greitt hafi verið fyrir viðveru. Ef greiðsla liggur ekki fyrir, stofnast krafa í heimabanka eiganda ökutækis. Gjald er einungis innheimt ef ökutæki stöðvar innan gjaldskyldu svæðis. Stutt viðkoma eða akstur í gegnum svæðið án þess að leggja telst ekki gjaldskylt. Gjaldskyldu þessa árs líkur 30. september.

Stykkishólmshöfn
Getum við bætt efni síðunnar?