Fara í efni

Góð þátttaka í sumarnámskeiðum

19.06.2025
Fréttir Lífið í bænum

Foreldrar og forráðamenn eru minntir á að ganga frá skráningu fyrir leikjanámskeið næstu viku fyrir hádegi föstudags, 20. júní. Skráning í leikjanámskeið fyrir 1.-3. bekk (árg. 2016 - 2018) er í netfangið klaudia@stykk.is. Þá er einnig minnt á að námskeiðum fyrir 4.- 6. bekk er lokið.

Undanfarin ár hefur sveitarfélagið boðið upp á leikja- og ævintýranámskeið fyrir yngri bekki grunnskólans eftir skólaslit að vori. Námskeiðin eru fjölbreytt en farið er í leiki, hjólatúra, sund, grillað saman og ýmislegt fleira. Lögð er áhersla á gleði og hreyfingu. Námskeið hófust 10. júní og hefur þátttaka verið góð.

Mynd úr safni
Getum við bætt efni síðunnar?