Götulýsing slökkt vegna almyrkva
Götulýsing í Stykkishólmi verður slökkt miðvikudaginn 12. ágúst á meðan almyrkvi á sólu stendur yfir.
Almyrkvinn verður sýnilegur í Stykkishólmi og stendur yfir í um 1 mínútu og 28 sekúndur frá Hólminum séð. Með því að slökkva á götulýsingunni er leitast við að draga úr birtu í bænum og skapa sem bestar aðstæður fyrir íbúa og gesti til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð.
Íbúar sem vilja njóta myrkvans í sem mestu myrkri eru jafnframt hvattir til að huga að útilýsingu við heimili sín og slökkva á ljósum sem kunna að kvikna sjálfkrafa, til dæmis vegna tímastillingar.