Fara í efni

Hækusýning á Frúarhól

04.08.2026
Fréttir Lífið í bænum

Hækusýning hefur verið sett upp á Frúarhól í þriðja sinn. Anna Sigríður Gunnarsdóttir stendur fyrir sýningunni ásamt höfundi, en hækurnar eru eftir Theodóru Gallant Helgason, og eru á ensku.

Hvað er hæka?

Hæka er japanskur bragháttur. Hefðbundin hæka hefur þrjár ljóðlínur með fimm atkvæðum í fyrstu línu, sjö í þeirri næstu og fimm í þriðju. Hækur innihalda hvorki rím mér stuðla.

Íbúar og gestir eru hvattir til að ganga með Frúarhólnum og lesa hækurnar sem settar hafa verið upp á nokkur skilti, en á einu skiltinu á lesa eftirfarandi texta:

Kæri lesandi,

Ég er ljóðskáld frá New York og dóttir Íslendings. Þessar hækur spruttu hver af annarri þegar ég gekk um Stykkishólm með gráðugum augum sumarið 2025. Þetta eru bestu ráð sem ég get gefið: Ef þú lendir í ritstíflu, farðu þá til Íslands.

Knús og kveðjur,

Theodóra Gallant Helgason

--

Anna S Gunnarsdóttir hefur einhvern undarlegan áhuga á hækum sem rekja má til ársins 1977 þegar hún keypti bók um japanskar hækur í Svövubúð í Stykkishólmi þar sem nú er Sjávarborg kaffihús. Anna er stjórnandi og hugmyndasmiður að þessum hækusýningum á skiltum og er þetta sú þriðja sem sett hefur verið upp við Frúarhólinn. Anna fæst við ýmisleg tengt myndlist, keramiki, samfélags saunu og sjósundi og finnst oft eins og hún sé að leysa lífsgátuna en rekur þá tánna í og sullar niður kaffinu.

Hæka á Frúarhól
Getum við bætt efni síðunnar?