Hannesarsteinn verður færður
Framkvæmdir við Stykkishólmsveg hófust í lok apríl þegar slitlag var fræst ofan af veginum frá afleggjara á Búðarnesveg og uppúr bænunum. Vegagerðin stendur fyrir framkvæmdinni sem er langt komin. Framkvæmdirnar ná yfir um 3,4 kílómetra kafla og fela í sér breikkun og styrkingu vegar, nýlögn ræsa og nýlögn á bundnu slitlagi. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði 8 metra breiður, með tveimur 3,5 m breiðum akbrautum og 0,5 m breiðum öxlum.
Vegna breikkunar vegarins og breytinga á veglínu mun Vegagerðin, í samráði við landeigendur og umráðamenn landa, færa girðingar meðfram Stykkishólmsvegi fjær veginum á þeim stöðum þar sem þess er þörf, en samkvæmt öryggisstöðlum skal girðing vera í minnst 15 metra fjarlægð frá miðlínu vegar.
Auk þess að breikka veginn er veglínan lítillega færð til á köflum en sökum þess þarf að færa Hannesarstein sem nú stendur við hlið vegarins, við afleggjara að kirkjugarði og Nýrækt. Ný veglína liggur yfir núverandi staðsetningu steinsins og var það niðurstaða Vegagerðarinnar að steinninn yrði að víkja. Gert er ráð fyrir að steinninn verði færður til svo hægt sé að klára vegaframkvæmdir og hann síðar færður á endanlega staðsetningu þegar ný hönnun á göngustíg meðfram veginum liggur fyrir.
Hannesarsteinn dregur nafn sitt af Hannesi Hannessyni, sem jafnan var kallaður Hannes stutti. Hann var þekktur hagyrðingur um Breiðafjarðabyggðir og víðar. Í bókinni Sögur úr Helgafellssveit og nágrenni, eftir Hönnu Jónsdóttur, má lesa sig til um Hannes sem Hannesarsteinn er kenndur við.