Fara í efni

Heilsudagar í Hólminum framundan

22.09.2022
Fréttir

Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu hefur verið sett saman stútfull dagskrá af íþrótta- og heilsutengdum viðburðum í Stykkishólmi dagana 23. - 30. september 2022

Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Íbúar hvattir til að taka þátt og finna sína hreyfingu til framtíðar. 

Dagskráin er hlaðin skemmtilegum heilsutengdum viðburðum og kynningum á íþróttastarfi hér í bæ sem hentar öllum aldri. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá og ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Frítt er á alla fyrirlestra. Hólmarar og gestir bæjarins eru hvattir til að mæta á viðburði og taka þátt í skemmtilegri viku. Vakin er sérstaklega athygli á því að frítt er í sundlaugina út mánuðinn. 

Smelltu á myndina hér að neðan til að skoða dagskrá Heilsudaga í Hólminum.

Það er ekki nóg að drekka bara malt til að viðhalda góðri heilsu.
Getum við bætt efni síðunnar?