Fara í efni

Helstu fréttir komnar út

03.07.2023
Fréttir

Á vefsíðu sveitarfélagsins Stykkishólms má lesa helstu fréttir sem snúa að rekstri sveitarfélagsins, viðburðum og öðru tengdu sveitarfélaginu. Fréttunum er svo deilt á facebooksíðu Stykkishólms til að ná athygli sem flestra. Í byrjun aprílmánaðar kom fréttaritið Helstu fréttir út í fyrsta sinn. Blaðinu er ætlað að bæta upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu og ná til þeirra sem ekki nota tölvur. Stór hluti markhópsins eru eldri borgarar, blaðið liggur því frammi á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi og í andyrri búseturéttaríbúða á Skólastíg. Einnig má nálgast blaðið í Ráðhúsinu í Stykkishólmi.

Fjórða tölublað kom út í dag, 3. júlí. Rafræn útgáfa blaðsins er öllum aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins en hana má nálgast hér að neðan. Næsta tölublað verður gefið út í byrjun september.

Smelltu á hnappinn hér að neðan til að lesa rafræna útgáfu blaðsins.

Helstu fréttir

 
Danskir dagar í Stykkishólmi 2023
Getum við bætt efni síðunnar?