Helstu fréttir komnar út
Helstu fréttir eru komnar út. Blaðinu er ætlað að bæta upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu og ná m.a. betur til eldra fólks og þeirra sem nota tölvur í minna mæli. Blaðið er gefið út mánaðarlega og liggur m.a. frammi á Höfðaborg, Í Bónus og Ráðhúsinu þar sem hægt er að nálgast eintak. Þá liggur blaðið einnig frammi á Systraskjóli.
Annað tölublað ársins kom út í dag, 4. febrúar. Rafræn útgáfa blaðsins er öllum aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins en hana má nálgast hér að neðan. Þá er jafnframt vakin athygli á því að eldri útgáfur blaðsins má nálgast hér, undir Helstu fréttir.
Smelltu á hnappinn hér að neðan til að lesa rafræna útgáfu blaðsins.