Fara í efni

Helstu fréttir komnar út

01.09.2023
Fréttir

Á vefsíðu sveitarfélagsins Stykkishólms má lesa helstu fréttir sem snúa að rekstri sveitarfélagsins, viðburðum og öðru tengdu sveitarfélaginu. Fréttunum er svo deilt á facebooksíðu Stykkishólms til að ná athygli sem flestra. Í byrjun aprílmánaðar kom fréttaritið Helstu fréttir út í fyrsta sinn. Blaðinu er ætlað að bæta upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu og ná til þeirra sem ekki nota tölvur. Stór hluti markhópsins eru eldri borgarar, blaðið liggur því frammi á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi og í andyrri búseturéttaríbúða á Skólastíg.

Í upphafi var íbúum boðið að skrá sig og fá blaðið sent heim en líkt og fram kom í síðasta blaði verður upplag blaðsins framvegis aðgengilegt í Miðstöð öldrunarþjónustu/ Skólastíg 14. Áhugasömum er bent á að næla sér í eintak þar.

Fimmta tölublað kom út í dag, 1. september. Rafræn útgáfa blaðsins er öllum aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins en hana má nálgast hér að neðan.

Smelltu á hnappinn hér að neðan til að lesa rafræna útgáfu blaðsins.

Helstu fréttir

 
Stykkishólmur í ágústmánuði 2023
Getum við bætt efni síðunnar?