Fara í efni

Hólmarar stigu á svið á Wacken Metal Battle

30.07.2026
Fréttir

Hljómsveitin SÓT steig á svið á Wacken Metal Battle í Þýskalandi í gær og stóð sig með miklum glæsibrag fyrir hönd Íslands.

Hljómsveitina skipa Hólmararnir Ísleifur Jónsson gítarleikari og Ívar Leo Hauksson bassaleikari ásamt norðlendingunum Arnari Smára Sigurðssyni trommuleikara, Aroni Frey Ívarssyni söngvara og Daníel Hrafni Ingvarssyni gítarleikara. SÓT vann sér þátttökurétt í alþjóðlegu lokakeppninni með sigri í íslensku undankeppninni fyrr á árinu og keppir nú við hljómsveitir víðs vegar að úr heiminum á Wacken Open Air, einni stærstu þungarokkshátíð heims.

Frammistaða sveitarinnar vakti verðskuldaða athygli og er það mikið afrek fyrir unga tónlistarmenn að komast á þetta virta svið.

Keppninni er þó ekki lokið en hún heldur áfram í dag, enn er því hægt að kjósa SÓT. Hólmarar og aðrir velunnarar sveitarinnar eru hvattir til að styðja sveitina með atkvæði sínu.

Nánari upplýsingar og hlekk á atkvæðagreiðsluna má finna hér: https://www.metal-battle.com/ 

Hljómsveitin Sót
Getum við bætt efni síðunnar?