Fara í efni

Hræðileg helgi í Hólminum

11.02.2026
Fréttir

Helgina 13.-14. febrúar verður mikið um að vera í Stykkishólmi þegar fram fer Hræðileg helgi í Hólminum. Félag atvinnulífs í Stykkishólmi stendur fyrir glæpa- og draugahátíðinni Hræðileg helgi.

Dagskrá hátíðarinnar er þétt en meðal annars geta gestir hátíðarinnar spreytt sig á morðgátu yfir helgina. Mikið púður hefur verið lagt í morðgátuna en í Tónlistarskóla Stykkishólms verður opinn vettvangur glæps þar sem rannsakendur geta spreytt sig á því að leysa morðgátu. Hræðileg helgi í Hólminum hefur vakið mikla lukku undanfarin ár. Dagskráin í ár er yfirgripsmikil og þar ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að kynna sér dagskrá hátíðarinnar á baksíðu blaðsins.

Dagskrá er eftirfarandi.

FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR
 
Kl. 14:00-17:00 Amtsbókasafnið
Hræðilegur ratleikur fyrir börn.
 
Kl. 16:00 - 17:00 Norska húsið
Barnadraugahús.
 
Kl. 17:00 Tónlistarskólinn í Stykkishólmi
Morðgáta.
Morðgátu vettvangur verður opin:
 
  • Föstudag: kl. 17:00 - 22:00
  • Laugardag: kl. 13:00 - 18:00
Svari við morðgátunni skal skilað í kassa á Fosshótel, hægt er að skila svari til kl. 20:00 laugardaginn 14. febrúar.
 
Kl. 19:30 - 20:30 Norska húsið
Draugahús fyrir fullorðna opið.
 
Kl. 21:00 Fosshótel
Hugleikur Dagsson húmoristi, listamaður og einlægur aðdáandi hryllingsmynda verður með svæsna umfjöllun og sýnir brot af því besta
 
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR
 
Kl. 12:30 Tónlistarskólinn í Stykkishólmi
Jazzhrekkur - ókeypis fjölskyldutónleikar
 
Kl. 14:00 - 16:00 Sjávarpakkhúsið
 
Kl. 14:00 Vandræðamenn og skaðræðisgripir í hópi förufólks fyrri alda. Jón Jónsson þjóðfræðingur fjallar í erindi sínu um nnokkra förumenn frá fyrri öldum sem þóttu sérstaklega óvinsælir og varasamir gestir.
 
Kl. 14:45 "Að hvíla í friði": Útfarar- og greftrunarsiðir í samtímanum. Dagrún Jónsdóttir þjóðfræðingur hefur að undanförnu rannsakað breytingar á slíkum siðum og fræðir um okkur um þær.
 
Kl. 14:00 - 16:00 Sjávarborg
 
Kl. 14:00 "Að hvíla í friði": Útfarar- og greftrunarsiðir í samtímanum. Dagrún Jónsdóttir þjóðfræðingur hefur að undanförnu rannsakað breytingar á slíkum siðum og fræðir um okkur um þær.
 
Kl. 14:45 Vandræðamenn og skaðræðisgripir í hópi förufólks fyrri alda. Jón Jónsson þjóðfræðingur fjallar í erindi sínu um nokkra förumenn frá fyrri öldum sem þóttu sérstaklega óvinsælir og varasamir gestir..
 
Kl. 16:00 - 18:00 Norska húsið
 
Mjólkurstofa - sýningarými: Opnun myndlistarsýningarinnar Svörtu verkin eftir Halldór Kristjánsson.
 
Risloft: Snæfellsnes fortíðar, Þjóðfræðingurinn Anna Melsteð leiðir sýninguna og vekur sögurnar til lífsins í þessu draugalega en heillandi rými.
 
Léttar veitingar í boði.
 
Kl. 18:00 Frjáls tími, nú eru síðustu forvöð að finna út hver er morðinginn. Minnum á að panta borð á veitingastöðunum.
 
Kl. 20:00 Fosshótel
Glæpa Kviss, Anna Margrét Pálsdóttir sérleg áhugamanneskja um morð og glæpi, treður upp með glæpsamlegum spurningum.
 
Kl. 22:00 Skipper.
Opið frameftir - glæpa partí. Fáðu afslátt á barnum með því að láta mála þig í hræðlegum stíl.
Morðgáta verður í Tónlistarskóla Stykkishólms
Getum við bætt efni síðunnar?