Fara í efni

Hrekkjavaka í Hólminum

29.10.2025
Fréttir

Hrekkjavökuganga verður í Stykkishólmi fimmtudaginn 30. október.

Eins og hefð hefur skapast fyrir stendur Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi  fyrir hrekkjavökugöngu í Stykkishólmi. Hrekkjavakan er haldin víða um heim þann 31. október á ári hverju.

Í ljósi þess að veðurspá fyrir föstudag er afar slæm hefur foreldrafélag grunnskólans ákveðið að flýta göngunni í ár og hvetur fjölskyldur og vini til að ganga í hús á eigin forsendum milli kl. 17:30 og 19:30 fimmtudaginn 30. október, þar sem börn safna sér sælgæti. Eins og áður verður gengið út frá þeirri reglu að banka megi uppá þar sem hús hafa verið merkt eða skreytt við eða á hurðina með skýrum hætti í tilefni Hrekkjavökunnar.

Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er stytting á All Hallows’ Evening sem er kvöldið 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu. Allraheilagramessa er er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar og er haldin 1. nóvember víðsvegar um heim. Hátíðin fer sífellt vaxandi hér á landi en á hrekkjavöku er hefð fyrir því að börn klæði sig upp í búninga og gangi í hús í leit að sælgæti.

Hólmarar eru hvattir til að skreyta húsin sín og taka þátt í gleðinni.

Getum við bætt efni síðunnar?