Fara í efni

Hundahreinsun fer fram að Hamraendum

23.11.2026
Fréttir

Árleg hundahreinsun fer fram næstu daga. Undanfarin ár hefur Dýralæknamiðstöð Vesturlands boðið eigendum skráðra hunda að bóka stuttan tíma fyrir hreinsunina. Auk hundahreinsunar er þá boðið upp á snögga heilsufarsskoðun og hundaeigendum gefst tækifæri til að spyrja spurninga og fá ráðgjöf varðandi sína hunda ef þörf er á.

Hægt er að bóka tíma með því að smella á hnappinn hér að neðan. Boðið er upp á tíma 24.,25. og 27. nóvember og 1. og 2. desember. Bent er á að hreinsunin fer nú fram að Hamraendum 6F (rauð bygging, út í enda).

Bóka tíma

Vert er að taka fram að gjald fyrir heilsufarsskoðunina er 3.900 kr. en ormahreinsunin er greidd af sveitarfélaginu. Þeim sem ekki vilja bóka heilsufarsskoðun er boðið að mæta í hundahreinsun með hefðbundnu sniði þann 8. desember milli kl. 16.00 og 18.00.

Samverustund í Hundagarðinum Stellulundi
Getum við bætt efni síðunnar?