Fara í efni

Hundahreinsun í Stykkishólmi

24.11.2025
Fréttir

Undanfarin ár hefur hundahreinsun farið fram með nýju sniði í Stykkishólmi. Fyrirkomulagið hefur mælst vel fyrir og verður hreinsunin því með sama sniði í ár. Í stað þess að boða alla hunda í hreinsun sama dag býður Dýralæknamiðstöð Vesturlands eigendum skráðra hunda að bóka stuttan tíma. Auk hundahreinsunar er boðið upp á snögga heilsufarsskoðun og hundaeigendum gefst tækifæri til að spyrja spurninga og fá ráðgjöf varðandi sína hunda ef þörf er á.

Hægt er að bóka tíma með því að smella á hnappinn hér að neðan. Boðið er upp á tíma frá 26. nóvember til og með 8. desember.

Bóka tíma

Vert er að taka fram að gjald fyrir heilsufarsskoðunina er 3.650 kr. en ormahreinsunin er greidd af sveitarfélaginu. Þeim sem ekki vilja bóka heilsufarsskoðun er boðið að mæta í hundahreinsun með hefðbundnu sniði þann 8. desember milli kl. 16.30 og 18.00.

Getum við bætt efni síðunnar?