Fara í efni

Íbúðir að Bauluvík 2 lausar til leigu

02.02.2026
Fréttir

Brák íbúðafélag hses. auglýsir íbúðir lausar til leigu að Bauluvík 2 , Stykkishólmi.

Íbúar sveitarfélagsins og aðrir áhugasamir eru boðnir velkomnir á opið hús miðvikudaginn 4. febrúar milli 16:30 og 17:30 þar sem íbúðirnar verða til sýnis.

Brák íbúðafélag á 12 íbúðir í Víkurhverfi. Þær standa við Bauluvík 2 í gula-, rauða- og bláa húsinu. Í hverju húsi eru fjórar íbúðir, 2ja herbergja, 3ja herbergja og 4ra herbergja.

Brák auglýsir nú eftir umsóknum um leigu á íbúðum að Bauluvík 2. Um er að ræða samtals níu íbúðir en búið er að ganga frá útleigu á 3 - 5 íbúðum. Stærð, tegund og leiguverð íbúða er eftirfarandi:

Tegund íbúða Samtals Leiguverð
3ja herbergja 81,6 233.376
3ja herbergja 73,6 210.496
4ra herbergja 92,5 264.550
3ja herbergja 81,6 233.376
3ja herbergja 73,6 210.496
4ra herbergja 92,5 264.550
3ja herbergja 81,6 233.376
3ja herbergja 73,6 210.496
4ra herbergja 92,5 264.550

 

Leiguverð miðast við byggingarkostnað íbúða og er leiguverð fyrir utan hita og rafmagn. Vekjum athygli á því að leigjendur eiga mögulega rétt á húsnæðisbótum, sjá nánar á island.is.

Brák íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða og er markmið Brákar íbúðafélags hses. að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.

Uppbygging þessara íbúða er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélasins og er gott dæmi um blandað samstarfsverkefni þar sem húsnæðisstuðningur sveitarfélagsins og ríkisins er nýttur til uppbygginga íbúð utan höfuðborgarsvæðisins .

Umsókn um leigu

Umsókn skal senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is , með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2026.

Áætlaður afhendingartími íbúðanna er frá 23.febrúar 2026

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.

Bauluvík 2
Getum við bætt efni síðunnar?