Fara í efni

Íslandsmeistarar í 2. deild

23.05.2025
Fréttir

Strákarnir okkar í 11.flokki gerðu sér lítið fyrir og urðu Íslandsmeistarar í 2.deild í körfuknattleik í gærkvöldi.

Snæfell spilaði gegn Stjörnunni/KFG í Umhyggjuhöllinni í gærkvöldi og endaði leikurinn 75-107. Þetta er afar glæsilegur árangur ekki síst fyrir þær sakir að Snæfell vann sig upp úr 3.deildinni í fyrra.

Þjálfarar strákana eru þeir Juan Luis Navarro og Gunnlaugur Smárason.

Sveitarfélagið óskar strákunum til hamingju með frábæran árangur!
Áfram Snæfell!

Snæfell, 11. flokkur
Getum við bætt efni síðunnar?