Fara í efni

Íþróttastarf hefst á ný

25.08.2026
Fréttir

Ný tímatafla Snæfells fyrir veturinn 2026-2027 hefur litið dagsins ljós. Vetrarstarf félagsins hefst í dag samhliða skólastarfi.

Vetrarstarf Heilsuhraustra Hólmara 60+ hefst svo næstkomandi mánudag, 31. ágúst, eftir sumarfrí.

Íbúar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að kynna sér það fjölbreytta og umfangsmikla íþróttastarf sem boðið er uppá í Stykkishólmi en þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi sem eflir bæði líkama og sál.

Tímatöflu  Snæfells og dagskrá Heilsuhraustra Hólmara má finna hér að neðan.

Tímatafla Snæfells

Heilsuhraustir Hólmarar

Snæfell mætti Reyni Hellissandi á íþóttavellinum í Stykkishólmi 15. ágúst sl.
Getum við bætt efni síðunnar?