Jákvæð rekstrarniðurstaða og rekstur styrkist enn frekar milli ára
Rekstur Sveitarfélagsins Stykkishólms skilar umtalsverðum hagnaði samkvæmt ársreikningi 2025, sem tekinn var til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 30. apríl 2026. Ársreikningurinn endurspeglar traustan rekstur sem hefur styrkst verulega milli ára.
Umtalsverður hagnaður og rekstur sjálfbær
Samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins 2025 var rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði jákvæð um 353 millj. kr. og rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 246 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 96 millj. kr., en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 100 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 3 millj. kr.
Til samanburðar má sjá á hér fyrir neðan yfirlit yfir rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins 2002-2025 og áætlun 2026-2029:
Eigið fé sveitarfélagsins (heildareignir að frádregnum heildarskuldum) var 1.265 millj. kr. árið 2025, en var 1.080 millj. kr. árið 2024 og hækkaði því um 186 millj. kr. milli ára. Eignir sveitarfélagsins eru samkvæmt ársreikningi samtals 4.826 millj. kr., en bókfært verð endurspeglar hins vegar ekki markaðsverð allra eigna sveitarfélagsins sem er umtalsvert hærri tala. Heildarskuldir og skuldbindingar eru um 3.560 millj. kr., en þar af eru langtímaskuldir við lánastofnanir 2.364. millj. kr. Aðrar skuldir í heildarskuldum, þ.e. annað en langtímaskuldir við lánastofnanir, eru skuldbindingar sem sveitarfélög geta haft minni áhrif á frá einu ári til annars, voru langtímahluti lífeyrisskuldbindinga 443 millj. kr. (lífeyrisskuldbinding er skuld vinnuveitanda vegna lífeyris starfsmanna), skuld við búseturéttarhafa 115 millj. kr. (íbúa sem búa á Höfðaborg) og allar skammtímaskuldir sveitarfélagsins 637 millj. kr. (skuldir sem greiðast á næstu 12 mánuðum, t.d. ógreiddir reikningar, skattaskuldir o.fl.).
Rekstrartekjur samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta námu 2.709 millj. kr. á árinu en þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.444 millj. kr. Rekstrartekjur A og B hluta jukust um 7% milli ára. Rekstrargjöld jukust um 5% milli ára og eru 3% hærri en áætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir.
Veltufé frá rekstri á árinu 2025 nam 291 millj. kr. og styrktist verulega milli ára. Afborganir langtímalána námu 231 millj. kr. Sveitarfélagið náði því markmiði sínu um fjárhagslega sjálfbærni á árinu 2025 enda stóð veltufé frá rekstri undir afborgunum langtímalána og vel það. Handbært fé í árslok nam 63 millj. kr. og lækkaði um 10 millj. kr. á árinu.
Fjárfestingar árið 2025 – fjárfesting til að mæta fjölgun íbúa
Í sveitarfélaginu hefur verið stöðug íbúafjölgun síðustu 10 árin og ef íbúaþróun heldur áfram sem fram horfir má gera ráð fyrir að íbúafjöldi Stykkishólms og Helgafellssveitar nái sögulegu hámarki á árinu 2026. Íbúafjölgun kallar eðli máls samkvæmt á uppbyggingu innviða til samræmis við það. Þann 2. apríl sl. var íbúafjöldi í sveitarfélaginu 1356.
Það er óhætt að segja að árið 2025 hafi verið ár framkvæmda, m.a. til að mæta þessari jákvæðu íbúaþróun. Samkvæmt ársreikningi námu fjárfestingar sveitarfélagsins 495 millj. kr. og voru helstu fjárfestingar sveitarfélagsins eftirfarandi:
- Uppbygging í Víkurhverfi
- Frágangur innviða og áframhaldandi þróun nýs íbúðarhverfis og undirbúningur og tengdur frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis
- Viðbygging og endurbætur við Grunnskólann í Stykkishólmi
- Um 350 m² viðbygging
- 200 m² nýjar kennslustofur og kennslurými
- 150 m² rými fyrir tómstunda- og æskulýðsstarf (Regnbogaland)
- Uppsetning lyftu til að bæta aðgengi
- Um 350 m² viðbygging
- Endurbætur á Sundlaug Stykkishólms
- Nýtt snjóbræðslukerfi
- Endurnýjun allra potta
- Uppsetning nýs saunaklefa og innfrarauðrar saunu
- Íþróttamannvirki
- Nýtt parket á íþróttagólf í Íþróttamiðstöð
- Gatna- og innviðaframkvæmdir
- Malbikun:
-
- Aðalgata (frá Bónus að Búðanesvegi í samvinnu við Vegagerðina)
- Borgarbraut
- Víkurhverfi
- ýmsir smærri kaflar, t.d. á Skólastíg
- Endurnýjun fráveitulagna við Aðalgötu
- Lagnavinna við Borgarbraut og víðar
-
- Malbikun:
- Umferðaröryggi
- Hraðatakmarkandi aðgerðir á Silfurgötu
Lántökur á árinu 2025 námu 325 millj. kr. og afborganir langtímalána voru 231 millj. kr. eins og áður sagði, en lántökur ársins voru umfangsmeiri í ár en síðustu ár vegna framangreindra fjárfestinga.
Skuldaviðmið og skuldahlutföll
Skuldaviðmið A og B hluta Sveitarfélagsins Stykkishólmur í árslok 2025 var 111% og er langt undir lögbundnu hámarki sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum, en rekstrarjöfnuður A og B hluta síðastliðinna þriggja ára er jákvæður um 78 millj. kr. og er það ánægjulegur viðsnúningur þar sem hann hefur verið neikvæður frá og með árinu 2021. Er það í samræmi við fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins sem gerðu ráð fyrir því að rekstrarjöfnuður næði jafnvægi í árslok 2025.
Hér að neðan má yfirlit yfir þróun skuldaviðmiðs og skuldahlutfalls hér sveitarfélaginu samkvæmt rauntölum til 2025 og áætlun 2026-2029:
Kjörtímabilið í heild sinni - afborganir lána hærri en nýjar lántökur
Þar sem um er að ræða síðasta ársreikning sem birtur er á yfirstandandi kjörtímabili, er ágætt að setja fjárfestinga og lántökur á kjörtímabilinu í samhengi við heildar langtímaskuldir sveitarfélagsins.
Á kjörtímabilinu hefur verið fjárfest umtalsvert í nýjum nauðsynlegum innviðum, án þess að auka skuldir með nýjum lántökum umfram afborganir á höfuðstól langtímalána. Til nánari upplýsinga og til samanburðar hefur heildarlántaka sveitarfélagsins á þessu kjörtímabili (2022-2025) verið samtals um 865 millj. kr. á meðan fjárfestingar sveitarfélagsins á sama tímabili hefur verið um 1.255 millj. kr. Afborganir langtímalána á sama tímabili voru um 876 millj. kr. Verðbætur hafa verið á tímabilinu 561 millj. kr. á meðan langtímaskuldir við lánastofnanir hafa hækkað um 469 mill. kr., úr 2.146 millj. kr. í 2.615 millj. kr.
Þrátt fyrir framangreinda fjárfestingar um 1,250 millj. kr. á kjörtímabilinu hafa afborganir langtímalána verið hærri en nýjar lántökur, sem þýðir að nettó lántaka er lægri en afborganir. Langtímaskuldir hafa hækkað á sama tíma, en sú hækkun skýrist að meginhluta til af verðbótum á verðtryggðum lánum en ekki af nýjum lántökum sveitarfélagsins. Þá er raunbreyting skulda lægri en verðbætur gefa til kynna. Það er því óhætt að fullyrða að þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í nauðsynlegum innviðum á kjörtímabilinu, sérstaklega undanfarin tvö ár, hefur verið gætt að hóflegri skuldsetningu og tryggt að hér sé viðhöfð ábyrg fjármálastjórn.
„Það er ánægjulegt að enda þetta kjörtímabil á góðum ársreikningi sem endurspeglar ágætlega hvernig raunstaðan er. Sveitarfélagið hefur fjárfest umtalsvert í nauðsynlegum innviðum undanfarin ár, sem bætt hefur þjónustustig í sveitarfélaginu og mætt þörfum stofnana þess, á sama tíma og það hefur staðið undir afborgunum og haldið skuldsetningu í lágmarki. Þróun skulda sveitarfélagsins skýrist að meginhluta af verðbólgu og verðbótum á lánum en ekki aukinni lántöku, og langtímaskuldir eiga sér mun lengri sögu en síðustu fjögur ár.
Það er því óhætt að segja að niðurstaða fyrirliggjandi ársreiknings, ásamt niðurstöðum fyrri ára, endurspeglar því sterka fjármálastjórn og ábyrgan rekstur, á sama tíma og sveitarfélagið hefur mætt jákvæðum áskorunum vegna fjölgunar íbúa með markvissri uppbyggingu innviða. En það má alltaf gera betur,“ segir Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri.
Bæjarstjórn samþykkti á framangreindum fundi að vísa umræðu um ársreikning til síðari umræðu. Jafnframt var samþykkt tillaga Hrafnhildar Hallvarðsdóttur, forseta bæjarstjórnar, um að næsti bæjarstjórnarfundur og þar með síðari umræða um ársreikning verði haldin á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í íbúafundarformi. Að lokinni formlegri umræðu bæjarfulltrúa og kynningu á ársreikningi verður fundi slitið og upptöku hætt. Í framhaldinu gefst íbúum kostur á að spyrja spurninga og koma á framfæri athugasemdum um ársreikning 2025.
Næsti bæjarstjórnarfundur, þar sem ársreikningur sveitarfélagsins 2025 verður kynntur, hefst kl. 17:00 fimmtudaginn 7. apríl nk. í Amtsbókasafni Stykkishólms. Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni.
Hér fyrir neðan má kynna sér fyrirliggjandi ársreikning sveitarfélagsins 2025.





