Fara í efni

Jólasveinaratleikur 2023

12.12.2023
Fréttir

Jólasveinaratleikurinn góði er hafinn. Líkt og í fyrra hefur Þjónustumiðstöðin með Jóni Beck, verkstjóra, í broddi fylkingar sett upp jólasveinaratleik til að stytta börnum og fjölskyldufólki stundir á aðventunni. Um er að ræða skemmtilega viðbót í jólaskreytingar bæjarins þar sem tækifæri gefst til að arka um Stykkishólm og leita að jólasveinunum sem eru í ýmsum erindagjörðum fyrir jólin og munu birtast hér og þar um bæinn, einn af öðrum. Ratleikurinn hefst í dag, þriðjudaginn 12. desember með komu Stekkjastaurs samkvæmt gamalli hefð og endar með komu Kertasníkis á Aðfangadag 24. desember.

Nú er því um að gera að drífa sig út að leita að Stekkjastaur en hann geymir svo vísbendingu um hvar megi finna næsta svein á morgun. Vísbendingin fyrir Stekkjastaur er þessi:

Stekkjastaur heyrði fallegan söng og hljóðfæraleik, hvert fór hann?

Stekkjastaur kemur fyrstur jólasveinanna. Hann var sagður sjúga mjólk úr kindum en hafði staurfætur á báðum svo heldur gekk það brösuglega. Stekkur er gamalt heiti á sérstakri fjárrétt og þaðan dregur sveinninn nafn sitt.

Stekkjastaur kom fyrstur
Getum við bætt efni síðunnar?