Fara í efni

Jólatré á hafnarsvæði við Skipavík

23.12.2025
Fréttir Lífið í bænum

Undanfarið hefur mikil breyting orðið á hafnarsvæði við Skipavík. Sveitarfélagið auglýsti í lok síðasta sumars að til stæði að ráðast í tiltekt á svæðinu. Í frétt á vef sveitarfélagsins var greint frá áherslu hafnarstjórnar á þörf á að fegra og snytra hafnarsvæðið við Skipavíkurhöfn, sér í lagi hvað varðar óhreyfða báta og vagna sem liggja jafnvel undir skemmdum. Umhverfis- og náttúruverndarnefnd Stykkishólms fjallaði jafnframt um málið á sömu nótum og benti á heimildir heilbrigðisnefndar Vesturlands til að hlutast til um að lausafjármunir séu fjarlægðir. Á þeim grunni samþykkti hafnarstjórn að leita eftir formlegu samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands um hreinsun á hafnarsvæði Skipavíkur.

Í samræmi við framangreint fór sveitarfélagið þess á leit við eigendur báta og lausafjármuna á svæðinu að þeir fjarlægðu eigur sínar sem eru utan lóða á svæðinu.

Eflaust hafa margir séð þær breytingar sem orðið hafa á svæðinu en þó ekki allir sem eiga leið niður að Skipavíkurhöfn. Búið er að rýma mikið til á svæðinu og fegra. Nú á dögunum settu starfsmenn áhaldahúss upp fallegt jólatré á svæðinu og eru íbúar hér með hvattir til að leggja leið sína á svæðið næst þegar þeir eru á ferðinni og rúnta í kringum jólatréð.

Jólatré við Skipavík
Getum við bætt efni síðunnar?