Fara í efni

Júlíana – hátíð sögu og bóka er haldin í þrettánda sinn

19.03.2026
Fréttir Lífið í bænum

Júlíana – hátíð sögu og bóka er haldin í þrettánda sinn dagana 19.–21. mars 2026. Hátíðin var fyrst sett á laggirnar árið 2013 og hefur síðan fest sig í sessi sem mikilvægur þáttur í lista- og menningarlífi Hólmara.

Að venju verður boðið upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá þar sem rithöfundar, ljóðskáld og aðrir listamenn stíga á svið. Í ár er sérstök ástæða til að fagna, þar sem verk Júlíönu Jónsdóttur, sem hátíðin dregur nafn sitt af, eiga merkisafmæli. Bókin Stúlka kom út árið 1876, fyrir 150 árum, og árið 1916, eftir að Júlíana fluttist til Vesturheims, kom út bókin Hagalagðar í Winnipeg í Kanada, fyrir 110 árum.

Í tilefni þessara tímamóta fékk Gréta Sig. Bjargardóttir, stofnandi Júlíönuhátíðar, Forlagið til að gefa út ljóðasafn Júlíönu í einu bindi. Ljóðin hafa staðist tímans tönn og bera vitni um gáfur, seiglu og skopskyn höfundarins, sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu.

Bókin verður fáanleg á hátíðinni í ár og verður henni sérstaklega fagnað í safnaðarheimili Stykkishólmskirkju kl. 16:00 föstudaginn 20. mars.

Bókin og hátíðin eru einnig til umfjöllunar í nýjasta þætti Kiljunnar, þar sem Egill Helgason ræðir við Grétu um útgáfuna. Einnig er rætt við Ellert Kristinsson, sem hefur gert upp Kristjánshús í Stykkishólmi, þar sem Júlíana bjó um tíma.

Dagskrá hátíðarinnar hefur verið borin í öll hús í Stykkishólmi en hana má einnig finna á Facebook-síðu hátíðarinnar.

Hótel Egilsen, þar sem hjarta hátíðarinnar slær
Getum við bætt efni síðunnar?