Kerlingarskarðshlaup fer fram í lok maí
Kerlingarskarðshlaupið var haldið í fyrsta sinn í lok maí 2025 og hlaut góðar undirtektir. Hlaupið verður haldið aftur í ár þann 23. maí næstkomandi. Um er að ræða 14 km langt utanvegahlaup sem fer fram á malarslóða í gegnum Kerlingarskarð. Leiðin tengir saman suður- og norðurhluta Snæfellsness og býður upp stórbrotna náttúru í Kerlingarskarði.
Hlaupið hefst á norðanverðu nesinu, við afleggjarann að Kerlingarskarði, og lýkur á sunnanverðu nesinu. Gert er ráð fyrir rútuferðum frá Stykkishólmi að rásmarki, einni til tveimur drykkjarstöðvum á leiðinni og verðlaunum fyrir fyrstu þrjú sætin. Hlaupið er ætlað bæði heimafólki og gestum sem vilja sameina hreyfingu, útivist og upplifun í náttúru Snæfellsness.
Skipuleggjendur hlaupsins eru Hólmararnir Emil Einarsson, Heiða María Elfarsdóttir og Björg Gunnarsdóttir. Vakin er athygli á því að þátttakendur þurfa að skrá sig til leiks en skráning fer fram á netskraning.is. Hægt er að kynna sér hlaupið nánar á facebooksíðunni Kerlingarskarðshlaupið. Hlaupið er m.a. styrkt af bæjarstjórn Stykkishólms.
Hægt er að kynna sér málið nánar á facebooksíðu hlaupsins.