Fara í efni

Kerlingarskarðshlaup fer fram um helgina

21.05.2026
Fréttir

Kerlingarskarðshlaupið var haldið í fyrsta sinn í lok maí 2025 og hlaut góðar undirtektir. Hlaupið verður haldið aftur komandi helgi, laugardaginn 23. maí. Um er að ræða 14 km langt utanvegahlaup sem fer fram á malarslóða í gegnum Kerlingarskarð. Leiðin tengir saman suður- og norðurhluta Snæfellsness og býður upp stórbrotna náttúru í Kerlingarskarði.

Hlaupið hefst á norðanverðu nesinu, við afleggjarann að Kerlingarskarði, og lýkur á sunnanverðu nesinu. Rútuferðir verða fyrir keppendur frá Stykkishólmi að rásmarki. Verðlaunum fyrir efstu þrjú sætin í kvenna- og karlaflokki. Hlaupið er ætlað bæði heimafólki og gestum sem vilja sameina hreyfingu, útivist og upplifun í náttúru Snæfellsness.

Örfá sæti laus

Hægt er að skrá sig í hlaupið til og með 22. maí. Keppnisgögn eru sótt föstudaginn 22. maí milli 16:00 og 19:00 og laugardaginn 23. maí milli 8:00-10:00 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Skráningargjald er 5000 kr. Nú þegar eru rúmlega 60 manns skráðir í hlaupið en hámarksskráning er 70 manns. Það eru því örfá pláss laus og áhugasamir því hvattir til að ganga frá skráningu sem fyrst. Hægt er að skrá sig til leiks hér.

Skipuleggjendur hlaupsins eru Hólmararnir Emil Einarsson, Heiða María Elfarsdóttir og Björg Gunnarsdóttir. Hlaupið er m.a. styrkt af bæjarstjórn Stykkishólms.

Hægt er að kynna sér málið nánar á facebooksíðu hlaupsins.

Fyrstu hlauparar skila sér yfir marklínu í Kerlingarskarðshlaupinu 2025.
Getum við bætt efni síðunnar?