Kosið í dreifbýlisráð 7. nóvember
Kosið verður í dreifbýlisráð laugardaginn 7. nóvember í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit.
Kosningarrétt í kosningu til dreifbýlisráðs hafa íbúar innan sveitarfélagamarka Helgafellssveitar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014 og íbúar með búsetu í Ögri.
Kjörgengur í dreifbýlisráð er hver sá sem hefur skráð lögheimili í þeim hluta sveitarfélagsins sem lýst er hér að ofan.
Kjörfundur verður í Félagsheimilinu Skildi á laugardaginn 7. nóvember frá kl. 10:00 - 18:00.
Aðsetur kjörstjórnar verður á kjörstað og hefst talning eftir að kjörstað hefur verið lokað. Sveitarstjórn kynnir niðurstöðu talningar á vefsíðu sveitarfélagsins, stykkisholmur.is.
Um dreifbýlisráð
Í aðdraganda sameiningar Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar lagði samstarfsnefnd til að sett yrði á fót sérstakt dreifbýlisráð til tryggja áhrif íbúa í dreifbýli á stjórnsýslu sameinaðs sveitarfélags og koma til móts við áhyggjur íbúa svæðisins.
Dreifbýlisráð skal skipað annars vegar einum fulltrúa og öðrum til vara kjörnum af sveitarstjórn og skulu þeir vera aðalfulltrúar í sveitarstjórn og hins vegar tveimur fulltrúum og tveimur til vara kosnum í beinni kosningu af íbúum í dreifbýlinu.