Fara í efni

Krakka Rökkur Rokk í Grundarfirði

09.10.2026
Fréttir

Rokkviðburðavika fyrir krakka á öllum aldri stendur nú yfir í Grundarfirði. Um helgina verða tónleikar í Samkomuhúsi Grundarfjarðar og því tilvalið fyrir Hólmara að gera sé ferð út á nes og heilsa upp á nágrannana. Dagskráin er hluti af barnamenningarhátíðinni Barnó Best Mest Vest á Vesturlandi og Rökkurdögum Grundarfjarðarbæjar.

Laugardaginn 10. október kl. 19:00 verður boðið upp á rokktónleika þar sem fram koma Djassband úr Tónlistarskóla Stykkishólms, Dirt Talent Extrackt frá Bolungarvík, Stokkseyri, Mosfellsbæ og Reykjavík, Noise Gate frá Reykjavík og Bergmenn frá Vesturlandi. Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög vel þegin til að standa straum af bensín- og ferðakostnaði.

Sunnudaginn 11. október heldur dagskráin áfram kl. 16:00 þegar Hólmarinn, Smári Tarfur Jósepsson, heimsækir gesti með gítarinn sinn og segir sögur af ferlinum. Kl. 17:00 hefjast svo rokk-kórtónleikar með Skólakórnum og gestasöngvurum undir stjórn Grétu Sigurðardóttur. Rokkband viðburðarins leikur undir en bandið skipa þau: Þorkell Máni á hljómborð, Einir Hugi á trommur, Hákon Rúnar á bassa, Valbjörn Snær á gítar og Bent á gítar.

Grundarfjörður
Getum við bætt efni síðunnar?