Kvöldsundstund í Sundlaug Stykkishólms
Notaleg kvöldsundstund verður í Sundlaug Stykkishólms þriðjudagskvöldið 9. júní milli kl. 20:00 og 22:00. Notaleg samvera, ljúf tónlist og hressandi drykkur í boði fyrir viðstadda. Um er að ræða notalega samverustund sem hentar vel fyrir alla fjölskylduna, íbúa, nágranna og aðra gesti. Athugið að frítt er í sund á þessum tíma.
Viðburðurinn er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn er hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Það er Svæðisgarðurinn Snæfellsnes sem stendur fyrir viðburðinum í samstarfi við Sveitarfélagið Stykkishólm.