Fara í efni

Landsmót Samfés í Stykkishólmi

22.09.2022
Fréttir

Landsmót Samfés fer fram í Stykkishólmi dagana 7. - .9 október næstkomandi. Á mótinu koma saman ungmenni á aldrinum 13-16 ára frá félagsmiðstöðvum um allt land. Hver félagsmiðstöð getur skrá fjóra þátttakendur til leiks og er búist við að um 300-350 ungmenni sæki mótið í Stykkishólmi. Mótshaldara hverju sinni gefst tækifæri til að kynna sitt sveitarfélag fyrir ungmennum og þá þjónustu og afþreyingu sem þar er í boði. 

Dagskrá Landsmóts Samfés er þríþætt. Unnið er í fjölbreyttum smiðjum þar sem markmiðið er að ungmennin taki það sem þau læra með sér heim og miðli reynslu sinni og þekkingu í sinni félagsmiðstöð. Auk þess er lögð rík áhersla á mikilvægi þess að hitta jafnaldra sína, kynnast nýju fólki og að allir skemmti sér sem best. Smiðjurnar geta sem dæmi tengst bakstri, framkomu, ræðumennsku, FROLF, fréttamennsku, ratleik, ofbeldi, geðheilbrigði ungmenna, sjálfsstyrkingu, hreyfing og lýðheilsu ofl.

Lýðræðisleg vinnubrögð eru allsráðandi á Landsmóti Samfés en lokadagur mótsins er helgaður Landsþingi ungs fólks. Það er Ungmennaráð Samfés sem hefur veg og vanda að því að skipuleggja þennan viðburð. Á Landsþinginu fær ungt fólk tækifæri til að tjá sig um hin ýmsu málefni þeim hugleikinn. Í kjölfar Landsþings tekur Ungmennaráð saman niðurstöður og sendir ályktanir á ráðuneyti, sveitarstjórnir, fjölmiðla og aðildarfélaga Samfés.

Á Landsmóti fer einnig fram lýðræðisleg kosning í Ungmennaráð Samfés. Alls er kosið í 9 kjördæmum þar sem tveir fulltrúar eru kosnir úr níu kjördæmum, 18 fulltrúa til tveggja ára og 9 fulltrúa til eins árs þannig að fulltrúar Ungmennaráðs Samfés séu 27. Kjörgengir til ungmennaráðs Samfés eru fulltrúar aðildarfélaga á aldrinum 13-16 ára.

Hér er myndband sem unnið var upp úr síðasta landsmóti og gefur hugmynd um hvað fer fram:
https://www.youtube.com/watch?v=34350t7AIVI

Landsmót Samfés 2022 fer fram í Stykkishólmi
Getum við bætt efni síðunnar?