Laus afleysingastaða við Íþróttamiðstöð Stykkishólms
Sveitarfélagið Stykkishólmur óskar eftir að ráða konu í starf við Íþróttamiðstöð og Sundlaug Stykkishólms. Um er að ræða sumarafleysingu frá 13. júlí til 12. ágúst í 100% vaktavinnu.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Starfssvið:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
- Klefa- og baðvarsla
- Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Tungumálakunnátta, íslenska nauðsynleg
- Hreint sakavottorð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. Sveitarfélaga og Kjalar. Fyrirspurnir um nánari upplýsingar sendist á netfang magnus@stykkisholmur.is, einnig má hafa samband í síma 8648862.
Hægt er að sækja um starfið á íbúagátt Stykkishólms.