Fara í efni

Laus staða í leikskólanum í Stykkishólmi

11.02.2026
Fréttir Laus störf

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa 100% afleysingastöðu, viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Góð íslensku kunnátta er skilyrði, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg.

Allar nánari upplýsingar veita Sigrún Þórsteinsdóttir, leikskólastjóri, og Elísabet Lára Björgvinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128, 8664535.

Hægt er að sækja um starfið á íbúagátt Stykkishólms.

Umsóknarfrestur er til 21. febrúar 2026.
Öllum umsóknum verður svarað.

Einkunarorð skólans eru:
Virðing – gleði – kærleikur

Leikskólinn í Stykkishólmi
Getum við bætt efni síðunnar?